Upplýsingar um Cinema Secrets

Almennar upplýsingar um vörur Cinema Secrets, notkunarleiðbeiningar og algengar spurningar.

Hér eru helstu ástæðurnar fyrir því að þú ættir að þrífa burstana þína reglulega:

  • Burstarnir endast lengur
    • Það er miklu betri ending á burstunum þínum ef þú hugsar vel um þá og þrífur reglulega.
  • Fer betur með húðina.
    • Óhreinir burstar safna bakteríum og ryki sem enginn ætti að setja viljandi í andlitið á sér.
  • Fallegri förðun
    • Það er svakalegur munur á hreinum burstum og óhreinum. Við mælum með að þú prófir og sjáir muninn.

Algengar spurningar

Hvað er Cinema Secrets?

Hvað er Cinema Secrets? Cinema Secrets er þekkt vörumerki í heimi förðunarfræðinga en vinsælasta varan okkar er burstahreinsirinn blái „Makeup Brush Cleaner“.
Hreinsirinn er mjög fljótur að þorna og hreinsar burstana þína mjög vel án þess að þurfa að skola. Allt sem myndi kallast vatnshelt eða langvarandi bráðnar af burstanum og skilur svo eftir sig léttan og góðan vanillu ilm.

Burstahreinsirinn er 99.99% bakteríudrepandi og er hann fáanlegur í 4 stærðum ásamt burstasápunni okkar sem er 100% vegan.

Hvernig nota ég hreinsinn?

Skref 1: Helltu burstahreinsinum í álboxið. Ekki fylla boxið en settu nóg svo að það nái upp í 1/4 af burstanum

Skref 2: Dýfðu burstanum í boxið eldsnöggt, en burstahreinsirinn mun strax vinna í því að taka óhreinindi af. Ef um stóran bursta er að ræða þá þarf aðeins að dýfa u.þ.b. 10% af burstanum í hreinsinn og halda honum þannig að vökvinn nái að dreifa sér niður burstann.

Skref 3: Þurrkaðu burstan hreinan í pappír eða klút. endurtakið skrefin ef þess þarf. endurmótið burstann og þá er hann tilbúinn til notkunar.

Er hreinsirinn fáanlegur í búðum?

Já, Vörurnar okkar eru sem dæmi fáanlegar í Hagkaup, Lyf og Heilsu Kringlunni, Elira og í vefverslun mymakeup.is.

Hafa samband

Vilt þú gerast söluaðili Cinema Secrets? Sendu okkur línu hér fyrir neðan.