Burstahreinsir frá Cinema Secrets
Cinema Secrets er þekkt vörumerki í heimi förðunarfræðinga en vinsælasta varan okkar er burstahreinsirinn blái „Makeup Brush Cleaner“.
Burstahreinsir er góð lausn þegar þú vilt halda förðunarburstum hreinum án þess að bíða lengi eftir að þeir þorni. Burstarnir þínir endast lengur ef þú þrífur þá reglulega. Einnig fer það betur með húðina að nota hreina bursta sem skilar sér í fallegri förðun. Cinema Secrets er þekkt vörumerki í heimi förðunarfræðinga og er notað af fagfólki í bransanum. Fljótur að þorna og hreinsar burstana einstaklega vel án þess að þurfa að skola. Allt sem myndi kallast vatnshelt eða langvanandi bráðnar í burtu og hann er fljótur að þorna svo þú getur strax notað hann aftur, skilur eftir sig léttann og góðann vanillu ilm. Hreinsirinn er 99.99% bakteríu drepandi.
Hér finnur þú vinsælar stærðir af burstahreinsi, þar á meðal ferðastærðir, stærri flöskur fyrir reglulega notkun og Tropical Lemon útgáfu. Ef þú vilt lesa meira um notkun og djúphreinsun geturðu líka skoðað fræðsluefni um burstahreinsi.

Burstahreinsir 32 oz / 946 ml
Sá stærsti er fyrir stórnotendur, t.d. leikhús, sjónvarpsstöðvar og þá sem eru með burstana sína í mikilli notkun. Einnig er gott að eiga hann heima og fylla á minni brúsa þegar þeir klárast.

Burstahreinsir 16oz / 473ml
Sá stóri er fyrir þá sem eiga marga bursta, notast við þá daglega og þurfa góða hreinsun á milli. Einnig er gott að eiga hann heima og fylla á minni brúsa þegar þeir klárast.

Burstahreinsir spray 6oz / 177ml
Kemur í spreybrúsa svo burstaþrifin eru extra fljótleg, æðislegur á setti þar sem hraðar hendur eru must!

Burstahreinsir 4oz / 120 ml
Fullkomin stærð til þess að ferðast með eða prófa í fyrsta skipti. Snilldar stærð til að halda uppá sem hægt er að fylla á.

PRO STARTER KIT 8oz / 237ml
Pro starter kit er algjör snilld fyrir pro förðunarkittið. Áldós fylgir í Starter kittinu sem þú hellir hreinsinum í og notast við hella, dýfa og þurrka meðferðina.

Burstahreinsir Tropical Lemon 16 oz / 473 ml
Millistór - fullkomin stærð sem hentar flestum og í förðunarkittið fyrir þá sem vinna freelance. Og nú fæst hann með Tropical Lemon ilm.

All-Natural Brush And Blender Soap
All natural burstasápan fjarlægir erfiða bletti og hjálpar til við endingu á bæði burstum og svömpum. Hún bæði hreinsar og veitir góða næringu og er 100% Vegan!
Hafa samband
Vilt þú gerast söluaðili Cinema Secrets? Sendu okkur línu hér fyrir neðan.
info@cinemasecrets.is